top of page
Colored Theatre Lights
dynamiklogo
Setja logo hér.png

Láttu drauma þína rætast!

SKRÁNING HAFIN Á SUMARNÁMSKEIÐ!

6.png

Dýnamík Sviðslistaskóli er framsækinn og metnaðarfullur skóli fyrir unga listamenn. Við leggjum áherslu á að búa til traust, uppbyggjandi og gleðilegt umhverfi fyrir nemendur okkar svo allir geti unnið að sinni sköpun, skorað á sig og byggt upp sjálfstraust. Skólinn leggur áherslu á að veita nemendum tækifæri og vera í virku samstarfi við umboðsskrifstofur og framleiðendur í íslensku listasenunni.

FAGMENNSKA
FRAMFARIR
FJÖR

Skólinn er í samstarfi við
Doorway Casting.

12 vikna önn þar sem nemendur kynnast leiklist, söng og dans á skapandi og skemmtilegan hátt! 

Hver önn endar með glæsilegri sýningu í leikhúsi.

Leiklist hentar byrjendum sem og lengra komnum og raðað er í hópa eftir reynslu og aldri.

12 vikna önn þar sem nemendur kynnast kvikmyndaleik.

Í gegnum námskeiðið eru tekin upp myndbönd sem verða klippt og nemendur fá afhend í lok annar.

Listhópar skólans eru fyrir framhaldsnemendur sem sýna mikinn áhuga og metnað. Þau eru tilbúin að læra nýja hluti og taka ýmsum áskorunum í leiklistinni.

Unnið er í fámennum hópum þar sem mikil áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð og framfarir.

Áheyrnarprufur eru haldnar í hópana.

Hafðu Samband

Skilaboð móttekin!

bottom of page