Um okkur
Dýnamík Sviðslistaskóli er framsækinn og metnaðarfullur skóli fyrir unga listamenn. Við leggjum áherslu á að búa til traust, uppbyggjandi og gleðilegt umhverfi fyrir nemendur okkar svo þau geti unnið að sinni sköpun ásamt því að byggja upp sjálfstraust og skora á sig.
Skólinn leggur áherslu á að veita nemendum tækifæri og vera í virku samstarfi við umboðsskrifstofur og framleiðendur auk þess sem við fáum reglulega heimsóknir frá gestakennurum í faginu.
Kennarar skólans eru allir starfandi listafólk.

Auður B
Leikkona og Skólastjóri
Auður Bergdís útskrifaðist sem leikkona frá
Royal Academy of Dramatic Art í London árið 2016, en hafði áður stundað nám á Nútímalistdansbraut Listdansskóla Íslands.
Síðusta áratuginn hefur hún unnið með þekkingu sína í dansi og leiklist sem leikkona, danshöfundur, dansari, leikstýra og sviðslistakennari víða á Íslandi sem og erlendis. Verk hennar hafa meðal annars verið sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins sem og í Ríkissjónvarpinu.

Auður Finnboga
Leikkona og Skólastjóri
Auður Finnbogadóttir útskrifaðist sem leikkona úr The American Academy of Dramatic Arts í Los Angeles árið 2017. Hún úskrifaðist með heiðusverðlaun sem besta leikkona og hefur einnig unnið verðlaun fyrir aðalhlutverk í Indie mynd á kvikmyndahátíð í Los Angeles. Auður lék í We Will Rock You í Háskólabíói, Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu og Hver vill vera Prinsessa? í Tjarnarbíói ásamt Ávaxtakörfunni í Gamla Bíó. Auður leikur í sýningunni Jólin á suðupunkti í Þjóðleikhúsinu 2025 og 2026. Auður hefur leikið í bæði kvikmyndum og sjónvarpsþáttum hérlendis og erlendis og leikur nú í sjónvarpsseríuni Flóðið sem kemur út páskana 2027.

Guðjón Ragnars
Leikari / Kvikmyndaleikstjóri
Skólastjóri
Guðjón Ragnarsson útskrifaðist úr New York Film Academy og stundaði einnig nám í Kvikmyndaskóla Íslands. Guðjón hefur unnið við kvikmyndagerð síðan 2005 bæði bakvið myndavélina og sem leikari. Hann hefur meðal annars gefið út stuttmyndina Eðli ásamt tveimum heimildarmyndum í fullri lengd, Hækkum Rána og Láttu þá sjá.
Hækkum Rána var valinn heimildarmynd ársins á Eddunni 2022. Verk Guðjóns hafa unnið til fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðum erlendis. Síðstu tvær myndir sem Guðjón leiktýrði með Dýnamík voru tilnefndar til Eddunar. Hann leikur nú í sjónvarpsseríunni Flóðið sem kemur út páskana 2027.

Fanný Lísa Hevesi
Leikkona/dansari/söngkona
Fanný Lísa Hevesi útskrifaðist með BA-gráðu í Performance in Musical Theatre frá Performance Preparation Academy í Englandi árið 2024. Áður útskrifaðist hún með láði úr Full Time Foundation Course í ArtsEd í London. Fanný nam einnig söng í Söngskóla Sigurðar Demetz og útskrifaðist með framhaldspróf í klassískum söng með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sem kennara. Hún nam dans m.a. við Klassíska Listdansskólann. Fanný vinnur sem dansari í Borgarleikhúsinu og er á veg leikhússins að koma fram í sýningunum Moulin Rouge og Galdrakarlinum í Oz. Meðal annara sýninga sem hún hefur tekið þátt í má nefna Kabarett og Krunk, krunk og dirríndí á vegum Leikfélags Akureyrar, Ávaxtakörfuna og Ævintýraóperuna Baldursbrá í Hörpu.

Ágúst Þór Hafsteinsson
Leikstjóri / Kvikmyndagerðarmaður
Ágúst Þór útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands 2018. Síðan þá hefur hann unnið sem kvikmyndatökumaður, klippari, framleiðandi og í handritsgerð fyrir innlend og erlend framleiðslufyrirtæki. Ágúst er samt fyrst og fremst leikstjóri. Stuttmyndin Chef de Partie sem hann leikstýrði hefur fengið mikið lof og hefur farið í dreifingu út um alla Evrópu á steymisveitum á við HBO+. Stuttmyndirnar Heimavistin og Tólf sem Ágúst gerði með kvikmyndalisthópi í Dýnamík voru báðar tilnefndar til Eddunar 2025 og 2026. Nú vinnur hann að sínu stærsta verkefni til þessa, heimildarmyndaseríu um íþróttafélagið Aþenu.

Helga Salvör
Leikkona
Helga Salvör útskrifaðist af leikarabraut LHÍ vorið 2025. Árið 2021 lauk hún diplómu námi í leiklist við lýðháskólann Musik og Teaterhøjskolen í Danmörku. Helga Salvör samskapaði og lék í sýningunni Heimsending sem sýnd var í Þjóðleikhúsinu. Einnig hefur hún leikið í nokkrum sjónvarpsverkefnum, sem dæmi má nefna kvikmyndina Harmur og sjónvarpsþættina Miðjan (Stöð 2) og Vandró (RÚV) og nýjustu verkefni Helgu eru þættirnir HÆST (Sjónvarp Símans) og þættirnir Bless, bless, Blesi (RÚV) sem koma út árið 2026.
Helga Salvör hefur líka kynnt Skrekk í Borgarleikhúsinu í tvígang og leikur Láru í uppsetningu Láru og Ljónsa í Þjóðleikhúsinu jólin 2026.

Þorsteinn Bachmann
Leikkari
Þorsteinn Bachmann útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1991 og hefur síðan starfað við leiklist á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur áratuga reynslu og hefur um árabil unnið markvisst með Michael Chekhov-tæknina. Eftirminnileg kvikmynda og sjónvarps verkefni sem Þorsteinn hefur leikið í eru Katla, King & conqueror, True Detective, The Darkness, Svörtu Sandar, Reykjavík 112, Afturelding, Arfurinn minn, Svo lengi sem við lifum, Lof mér að falla, Vonarstræti, Á annan veg og Órói.

Rósa Björk Ásmunds
Leikkona / Söngkona
Rósa Björk útskrifaðist sem leikkona úr
The American Academy of Dramatic Arts í
New York árið 2021, en hafði áður stundað nám við leiklistarskóla Jacques Lecoq í París, Frakklandi, þar sem áherslan var lögð á líkamlega leikhústækni. Hún hefur ákaft sótt söng- og leiklistarnámskeið með mismunandi áherslum en vinnur með þekkingu sína í tónlist og leiklist sem leikkona, söngkona & lagahöfundur, framleiðandi, handritshöfundur og sviðslistakennari. Rósa er meðlimur Improv Ísland en nýleg verk hennar sem leikkona innihalda meðal annars þáttaseríuna Matarsagan (2024) og stuttmyndina Duld (2024).

Inga Steinunn
Spuna leikkona
Inga Steinunn er sviðshöfundur og grínisti. Hún sýndi vikulega með spunahópnum Improv Ísland frá árinu 2019-2025, ásamt því að kenna námskeið á þeirra vegum. Einnig hefur hún kennt börnum spuna í Hjallastefnunni, leikstýrt menntaskólaleikritum og kennt krökkum leiklist víða. Frumraun hennar í uppistandi var í Tjarnarbíói árið 2023. Í kjölfarið sýndi hún uppistandsýninguna Vangadans í Þjóleikhúskjallaranum, og verið hluti af kvöldum sem kallast Smá uppistand. Nýverið frumsýndi hún leiksýninguna Leikritið í Afturámóti sem hún skrifaði og flutti.

Júlí Mjöll
Söngleikjamenntun

Vigfús Þormar
Eigandi Doorway Casting
Júlí Mjöll útskrifaðist með BA gráðu í Musical Theatre frá Instutute of the Arts Barcelona í júní 2024. Innan námsins tók hán þátt í fjórum söngleikja uppsetningum, The Prom (2023), We Will Rock You (2023), Into the Woods (2023) og Wild Party (2024). Vorið 2025 leikstýrði Júlí söngleiknum Anní jr. í Ungleikhúsinu, haustið 2025 söngleiknum Fame Jr. í Dýnamík og nú í haust leikstýrir hán Elf. Jr. Júlí leikur einnig í söngleiknum Kabarett í Þjóðleikhúsinu.
Júlí hefur kennt bæði leiklist og dans í mörg ár hjá nokkrum viðurkenndum sviðslistaskólum hér á landi.
Vigfús Þormar Gunnarsson er casting leikstjóri og eigandi Doorway Casting, sem er ein stærsta leikaravalsskrifstofa Íslands. Meðal verkefna sem hann hefur castað eru Vitjanir, Svörtu Sandar, Lof mér að falla, Ráðherrann, Systrabönd, Stella Blómkvist, Hjartasteinn og Hrútar, auk margra annarra.
Vigfús starfar einnig sem leikari og aðstoðarleikstjóri.

Berta
Leikkona
Berta útskrifaðist með BFA í leiklist frá New York Film Academy 2019 og var útskriftar verkefnið hennar valið til verðlauna. Hún flutti aftur til Íslands 2020 og hefur síðan unnið sem leikari, leikstjóri og kennt leiklist. 2024 útskrifaðist hún með viðbótar diplómu í farsæld barna. Einnig leikstýrði hún Rocky Horror í Gamla bíói 2024 á vegum Frúardags og 2025 samdi hún og setti upp barnasýninguna Fýlupúkarnir á Barnamenningarhátíð Reykjavíkur.

Ásdís Rós
Leikkona
Ásdís Rós hefur unnið í 10 ár í London sem leikari, dans- og sviðshreyfingarhöfundur, og leiklistarkennari. Hún úrskrifaðist með BA-gráðu frá London Studio Centre og MFA-gráðu frá Guildford School of Acting London. Hún kenndi við marga virtustu háskóla, menntaskóla og leiklistarskólana þar, meðal annars Guildford School of Acting, Fourth Monkey, London College of Performing Arts, Kingdom School of Arts, Identity. Auk þess að kenna hin ýmsu fög leiklistarinnar (senu vinnu bæði fyrir sviðið og skjáinn, spuni, grunn að raddbeitingu leikarans og að vinna með shakespeare), sérhæfði hún sig í líkamstjáningu og hreyfingu fyrir leikarann og kenni meðal annars aðferðafræði og tækni Michael Chekhov, Laban, Lecoq og Viewpoints, sem og almennan grunn að líkamsbeitingu og -tjáningu fyrir leikarann.
