top of page
4U2A5610.JPG
4U2A5279.JPG

Unglingar

8.-10. bekkur og framhaldsskóli

Við leggjum mikið upp úr einstaklingsmiðuðu námi í fámennum hópum svo allir fái að láta ljós sitt skína. Sterk áhersla í öllu okkar námi er á að búa til traust, uppbyggjandi og gleðilegt umhverfi fyrir nemendur okkar.

5 brautir eru í boði fyrir nemendur í 8.-10. bekk og framhaldsskóla. 

Smelltu til að lesa meira.

LEIKLIST

Leiklist 

LEIKLIST, SÖNGUR, DANS

12 vikna önn þar sem nemendur vinna með leiktækni á skapandi og skemmtilegan hátt!

  • UNGLINGAHÓPAR læra leiklist gegum vinnu með hugtök og aðferðir þekktra leiklistarfrumkvöðla ásamt því að vinna með senur og texta úr þekktum og óþekktum leikritum, ásamt því að kynnast samsköpunaraðferðum.
    Unnið verður með líkamlegan spuna, raddþjálfun og stærð leikarans á sviði ásamt því að nemendur læra að virkja ímyndunaraflið í sköpun og spuna.
    Þegar leikverk annarinnar býður uppá lærir hópurinn dansatriði með hópsöng.
    Unglingahópar æfa 2 klst á viku

     

  • LISTHÓPUR MIÐSTIG er framhaldshópur fyrir nemendur í 8.-10. bekk sem vilja skora á sig, læra dýpri leiktækni og setja á svið flóknari leikrit. Krafa er gerð um mætingu, elju, textakunnáttu og undirbúning. 
    Listhópur Miðstig æfir 3,5 klst á viku
    Áheyrnarprufur eru haldnar inn í hópinn.

    Skráðu þig í prufu fyrir listhóp hér!
     

  • LISTHÓPUR ELDRI er framhaldshópur fyrir metnaðarfulla nemendur með þekkingu í leiklist sem vilja skora á sig og læra dýpri leiktækni. Hópurinn vinnur með nýtt þema á hverri önn og tekur fyrir leiktækni, skapandi skrif, senuvinnu og persónusköpun í gegnum samsköpun, vinnu með þekkt og óþekkt leikrit eða uppsetningu heils leikverks. 
    Krafa er gerð um mætingu, elju, textakunnáttu og undirbúning.
    Listhópur Eldri æfir 3-4 klst á viku.
    Áheyrnarprufur eru haldnar inn í hópinn.
    Skráðu þig í prufu fyrir listhóp hér!

     

  • SÖNGLEIKJAHÓPUR er framhaldshópur fyrir nemendur sem vilja skora á sig í söngleikjalistinni.
    Á vorönn æfir hópurinn söng, leiklist og dans og setur upp verk sem samanstendur af ýmsum söngleikjalögum og senum.

    Á haustönn eru haldnar áhernarprufur inn í hópinn og settur er upp stór söngleikur.Krafa er gerð um mætingu, elju, textakunnáttu, heimaæfingar og undirbúning. 
    Söngleikjahópur æfir 4 klst á viku.
    Skráðu þig í prufu fyrir listhóp hér!

     

Hver önn endar með glæsilegri sýningu í leikhúsi!

ListhópurM
ListhópurE
Söngleikur
4U2A8601.JPG

LeiklisT&
Listhópar

LEIKLIST UNGLINGAR​​

Mánudagar kl. 17:30-19:00
Þriðjudagar kl. 16:00-18:00

Þriðjudagar kl. 18:00-20:00

Miðvikudagar kl. 20:00-22:00

SÖNGLEIKJAHÓPUR

Laugardagar kl. 10:30-14:30 

LISTHÓPUR - MIÐSTIG​

Þriðjudagar kl. 18:30-20:00 &

Fimmtudagar kl. 18:00-20:00

LISTHÓPUR - ELDRI

Mánudagar kl. 19:00-22:00

PRUFUR FYRIR LISTHÓPA VERÐA 18.-19. ÁGÚST

Skráning hefst 4. ágúst kl. 12:00!

KVIKMYNDALEIKUR

Kvikmyndaleikur

SENUR/SHOWREEL

12 vikna önn þar sem nemendur vinna með leiktækni á skapandi og skemmtilegan hátt! 

 

Kennd er leiktækni og fagleg vinnubrögð á kvikmyndasetti. 

Nemendur fá einnig tækifæri til að hitta gestakennara úr bransanum. 

  • KVIKMYNDALEIKUR UNGLINGAR I
    Nemendur kynnast kvikmyndaleik á afslappaðan og skemmtilegan hátt gegnum leiki, spuna, hreyfingu, senu- og textavinnu. Unnið er með senur og texta úr þekktum og óþekktum kvikmyndum, leikritum og sjónvarpsþáttum. Kennd eru fagleg vinnubrögð á kvikmyndasetti og í kringum myndavél. Tekin verður upp sena og/eða eintal með atvinnu kvikmyndatökumanni sem þau fá afhenda í lok annar sem þau geta notað til að koma sér á framfæri.
     

  • KVIKMYNDALEIKUR UNGLINGAR II
    Framhaldsnemendur læra kvikmyndaleik í gegnum leiki, spuna, hreyfingu, senu- og textavinnu ásamt karaktersköpun. Kennd eru fagleg vinnubrögð á kvikmyndasetti og í kringum myndavél. Tekin verður upp stuttmynd með atvinnu kvikmyndatökumanni sem þau fá afhenda í lok annar sem þau geta notað til að koma sér á framfæri. Nemendur fá einnig headshot.

 

  • LISTHÓPUR - KVIKMYNDALEIKUR.  
    Framhaldshópur fyrir metnaðarfulla Unglinga. Í Listhópi-Kvikmyndaleik fá nemendur tækifæri til að skora enn meira á sig með krefjandi æfingum og djúpri persónusköpun. Nokkrir tökudagar með atvinnu kvikmyndatökumanni verða á önninni. Hópurinn fær einnig tækifæri til að taka upp self-tape og hitta casting leikstjóra frá Doorway Casting. 
    Í lok annar fá nemendur afhent efnið sem þau skjóta sem þau geta nýtt á þann hátt sem þau kjósa. (t.d. í showreel). Nemendur fá einnig headshot sem þau geta notað til að koma sér á framfæri.
    Krafa er lögð á metnað og textakunnáttu og því þurfa nemendur að undirbúa sig vel heima og kunna að vinna sjálfstætt. 
    Áheyrnarprufur eru haldnar inn í hópinn. Einnig er hægt að senda selftape.
    Skráðu þig í prufu fyrir kvikmynda listhóp hér!

Kvikmyndagerð
4U2A6469.JPG

KVIKMYNDALEIKUR&
Listhópar

KVIKMYNDALEIKUR UNGLINGAR

Sunnudagar kl. 12:00-14:00 (I)
Sunnudagar kl. 14:00-16:00 (II)

Sunnudagar kl. 16:00-18:00 (II)

KVIKMYNDA LISTHÓPUR 16+

Þriðjudagar kl. 20:00-22:00

 + tökutímabil

PRUFUR Í ÁGÚST

Skráning hefst 4. ágúst kl. 12:00!

Einsöngur

Einsöngur

ÞENDU RADDBÖNDIN

10 vikna námskeið þar sem nemendur fá að þenja raddböndin! Í þessum tímum læra nemendur söngtækni og framkomu svo þau njóta sín og geta staðið örugg á sviði og sungið einsöng. Lögð verður áhersla á söngleikjalög en einnig geta nemendur valið lög sem henta þeirra áhuga- og raddsviði. Lagður verður grunnur að notkun á míkrafóni auk þess sem nemendur fá að vinna með styrkleika og nánd raddarinnar án stuðnings hljóðnema.

Aðeins 5-6 nemendur eru í hverjum hópi

Miðvikudagar kl. 18:30-19:30

*möguleiki að bæta við hópi

Frábær tími til að bæta við leiklistartímana!

 

Námskeiðinu lýkur með óformlegum tónleikum í rými skólans.

bottom of page