Leiklist
LEIKLIST, SÖNGUR, DANS
12 vikna önn þar sem nemendur vinna með leiktækni á skapandi og skemmtilegan hátt!
Kennd verður leiklist, hópsöngur og dans.
-
Í 6-7 ára hópum kynnast nemendur leiklist, söng og dansi í gegnum leiki, sjálfsstyrkingu og sköpun. Unnið er markvisst með hugrekki, ímyndunarafl og samvinnu.
- Önnin er 12 vikur og endar á stuttu atriði sem er sýnt í leikhúsi.
Einsöngur
ÞENDU RADDBÖNDIN
10 vikna námskeið þar sem nemendur fá að þenja raddböndin! Í þessum tímum læra nemendur söngtækni og framkomu svo þau njóta sín og geta staðið örugg á sviði og sungið einsöng. Lögð verður áhersla á söngleikjalög en einnig geta nemendur valið lög sem henta þeirra áhuga- og raddsviði. Lagður verður grunnur að notkun á míkrafóni auk þess sem nemendur fá að vinna með styrkleika og nánd raddarinnar án stuðnings hljóðnema.
Hópurinn æfir 1 klst á viku
Aðeins 5-6 nemendur eru í hverjum í hóp
Miðvikudagar kl. 17:30-18:30
*Möguleiki á auka hóp
Námskeiðinu lýkur með óformlegum tónleikum í rými skólans.






